Ótrúlegt úrval

Hægt er að velja um nokkrar tegundir af vélarís allan ársins hring eins og vanillu, jarðarberja og súkkulaði. Einnig bjóðum við upp á vanilluís án viðbætts sykurs, laktósafrían vanilluís og svo er alltaf hægt að fá gamla vanillu, sem sumum finnst alveg ómissandi.

Yfir sumarmánuðina bætum við alltaf við hinum ýmsu tegundum, allt eftir því hvað okkur dettur í hug. Má þar nefna bananaís, mokka, kirsuberja, myntu og tyrkisk peber. Endilega spyrjið starfsfólkið hvað sé á boðstólnum þegar þið komið til okkar og það er aldrei að vita nema þitt uppáhald er í boði þann daginn.

Ísinn er hægt að fá annað hvort í boxi, brauði eða vöffluformi og erum við með stærðirnar smábarna, lítill, mið og stór. Að auki er hægt að fá fjölskyldustærð af boxi (1L) sem er mjög vinsælt að fara með heim og njóta með allri fjölskyldunni. Með því er hægt að kaupa sósur og nammi. Trúðaísinn er alltaf hægt að fá og það er fátt sem hittir eins vel í mark hjá yngri kynslóðinni en einn vel gerður trúðaís.

Við bjóðum upp á ótrúlegt úrval af dýfum og sósum sem hægt er að velja með ísnum. Við eigum fjölmargar bragðtegundir af köldum sósum auk þess sem við eigum nokkrar kaldar sósur án viðbætts sykurs. Til eru alls konar ljúffengar dýfur, svo sem súkkulaði, lúxus, lakkrís, karamellu, toblerone, nutella og tyrkisk peber. Heitu sósurnar standa alltaf fyrir sínu og eigum við auk klassísku súkkulaði og karamellu, snickers, mars og nutella sósur.

Endilega fáið nánari upplýsingar hjá starfsfólki og látið okkur vita ef um ofnæmi eða óþol er að ræða.