Ein, tvær, þrjár eða eins margar kúlur og þú vilt!

Kúluísborðið okkar er stórt og girnilegt og þar er að finna 24 tegundir af kúluís.

Tegundir eru m.a. súkkulaði mynta, cappuccino, saltkaramella, kökudeig,
bananasplitt, sítróna, karamellu pekan, kókos o.fl. Einnig erum við með sorbet
sem eru vegan ísar eins og jarðarberja, líme, ástaraldin og bláberja.

Hægt er að fá ísinn annað hvort í vöffluformi eða boxi og hægt er að fá eina, tvær eða þrjár kúlur eða bara eins margar og þig langar í.

Hægt er að bæta við heitum eða köldum sósum eða girnilegum dýfum eins og súkkulaði, karamellu, nutella eða toblerone.
Einnig er hægt að bæta við nammi og/eða ávöxtum.

Endilega fáið nánari upplýsingar hjá starfsfólki og látið okkur vita ef um ofnæmi eða óþol er að ræða.